Kona sem lét klippa sig á hárgreiðslustofu í Jönköping í Svíþjóð var svo óánægð með klippinguna að hún gekk berserksgang og beit hársnyrtinn.
Konan, sem er 42 ára samkvæmt frétt á vef Aftonbladet, lét fyrst munnlega í ljós óánægju sína og hélt síðan sína leið. Stuttu seinna sneri hún tilbaka og krafðist endurgreiðslu vegna misheppnaðrar klippingar. Þegar konunni var neitað um endurgreiðslu hóf hún að eyðileggja innréttinguna og reif meðal annars niður hillu. Áður en konan fór út beit hún eiganda hársnyrtistofunnar sem þurfti að leita til læknis.
Lögreglan handtók konuna í nærliggjandi verslun. Samkvæmt frásögn lögreglunnar var hún hvorki ölvuð né undir áhrifum fíkniefna.