Bandarískt fyrirtæki býður tæpar 600 þúsund kr. í verðlaunafé berist því ábendingar sem leiða til handtöku brennuvargsins sem hefur kveikt í ferðaklósettum í San Francisco.
Fyrirtækið býður einnig eins árs birgðir af klósetthreinsivörum í skiptum fyrir gagnlegar ábendingar. Síðustu mánuði hefur verið kveikt í á þriðja tug klósetta á byggingarsvæðum víðsvegar um borgina. Áætlað er að tjónið nemi u.þ.b. 7 milljónum kr.
Fyrirtækið ætlar að senda hóp starfsmanna á götur borgarinnar til að auglýsa verðlaunaféð og óska eftir ábendingum. „Það er skítastarf, en einhver verður að gera það,“ sagði talsmaður fyrirtækisins.