Það verður seint hægt að kalla tíuhorna reiðhjólið hans Didi Senft þægilegt en það hjól er þó með því þýðara, sem hann hefur smíðað.
Senft var á yngri árum keppnismaður í hjólreiðum en eftir að hann hætti keppni hóf hann að smíða sérkennileg hjól. Nú smíðar hann að jafnaði tvö slík á ári.