Tveir innbrotsþjófar í Leicester á Englandi fylla flokk afbrotamanna sem fara ótroðnar slóðir.
Þannig gerðu þeir sér lítið fyrir eftir innbrot í heimahús þar í borg og báðu leigubílstjóra um aðstoð við að flytja heim þýfið.
Inntir eftir því hvort þeir hefðu brotist inn hlógu þeir við og báðu bílstjórann um halda áfram akstrinum, grunlausir um að húseigandinn sat við stýrið.