Bandarísk kona slapp með skrekkinn þegar byssukúla endurkastaðist af vír í brjóstahaldaranum hennar. Að sögn lögreglunnar í Detroit í Bandaríkjunum skaut innbrotsþjófur að konunni þar sem hún horfði á hann ræna húsið við hliðina ásamt fleiri þjófum.
Konan stóð við stofugluggann þegar þjófurinn skaut á hana og fór byssukúlan í gegnum rúðuna og í konuna. Í staðinn fyrir að fara inn í líkama hennar endurkastaðist hún hinsvegar af vírnum í brjóstahaldara hennar.
Vírinn hægði verulega á kúlunni og hlaut konan því aðeins minniháttar meiðsli. „Við þurfum að fá skotheld vesti úr sama efni. Þetta er ólseigur vír,“ sagði lögreglan.