2 ára stúlka í gáfumannasamtök

Elise Tan-Roberts hefur fengið inngöngu í breska gáfumannafélagið Mensa. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi ef Elise væri ekki aðeins rúmlega 2 ára gömul.

Mensa segir, að Elisa sé yngsti félaginn, sem hafi fengið aðild að félaginu í Bretlandi en ekki er ljóst hvort hún er yngsti félaginn í rúmlega sex áratuga langri sögu Mensa, sem starfar nú í um 40 löndum.

Mensa var stofnað á Englandi árið 1946. Inntökuskilyrðin eru að fá háa einkunn á gáfnaprófum, sem félagið hefur þróað.  Mensa leggur ekki slík próf fyrir börn en barnasálfræðingur prófaði Elisu að sögn blaðsins Daily Mirror. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar