95 ára gömul ísraelsk kona var svolítið að flýta sér í síðustu viku en hún var staðin að því að aka bíl sínum á 135 km hraða á vegi þar sem hámarkshraðinn er 90 km.
„Það var enginn á veginum svo ég steig bensínið í botn," höfðu lögreglumenn eftir konunni.
Konan missti ökuréttindin í mánuð og á von á sekt.
Ísraelsmenn þykja almennt lélegir ökumenn og margir þeirra hunsa alfarið reglur um hámarkshraða og aðrar umferðarreglur.