Aflimaði elskhuga eiginkonunnar

Franskur lögregluþjónn hefur verið ákærður fyrir grimmdarlegar pyntingar og limlestingu en hann hjó kynfæri elskhuga eiginkonunnar af með búrhníf, samkvæmt upplýsingum frá saksóknaraembættinu í Strassborg.

Á maðurinn, 43 ára fimm barna faðir, yfir höfði sér allt að þrjátíu ára fangelsi fyrir athæfið. Er sérstaklega fylgst með honum í varðhaldi þar sem óttast er að hann reyni að fremja sjálfsvíg. Maðurinn gaf sig fram við lögreglu eftir limlestinguna á laugardag.

Samkvæmt gögnum frá saksóknaraembættinu fór lögregluþjóninn á heimili elskhugans í bænum Reichshoffen, rotaði hann og dró hann meðvitundarlausan inn í bílskúr þar sem hann aflimaði manninn.

Eftir að hafa framið glæpinn bað hann nágranna elskhugans að hringja á sjúkrabíl en gaf sig síðan fram við lögreglu. Segir í skýrslu geðlæknis að svo virðist sem maðurinn hafi framið glæpinn með köldu blóði og er mælt með því að hann verði vistaður á réttargæsludeild.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir