Rússneski sjóherinn segir, að tundurspillir hafi gert stórskotaliðsárás á þorp í nágrenni St. Pétursborgar fyrir mistök.
Sjóherinn segir að engan hafi sakað þegar tundurspillir í Eystraasaltsflotanum hafi skotið sprengjum á þorp í Vyborgarhéraði. Flotinn var á æfingu í Finnska flóa.
Rússneski sjóherinn hefur lent í ýmsum óhöppum frá því Sovétríkin hrundu.