Ljóskur í Lettlandi gripu til óvenjulegra ráðstafana í gær í þeim tilgangi að berjast gegn fjármálakreppu sem herjar á landið líkt og víða annars staðar. Má segja að aðgerðirnar hafi verið óvenjulegar því þær fóru í skrúðgöngu til að vekja athygli á málsstaðnum.
Bleikt og hvítt og smáhundar voru áberandi og ljóst að þær voru að líta til myndarinnar Legally Blond sem skartaði Reese Witherspoon í aðalhlutverki.