Fyrrum lögregluþjónn hjá New York borg í Bandaríkjunum hefur farið fram á 100 þúsund bandaríkjadali í skaðabætur fyrir það sálræna áfall sem hann varð fyrir er hann beit í túnfiskssamloku og rakst þar á bein.
AFP fréttastofan skýrir frá því að þessi fyrrum lögreglumaður sem nú starfar sem einkaspæjari hafi legið við köfnun og hafi ekki verið samur eftir áfallið.
Robert Mckenna sem er 57 ára telur sig hafa orðið fyrir varanlegu tilfinningalegu tjóni er hann beit í samlokuna fyrir tveimur árum. Hann segist verða viðþolslaus í návist túnfisksafurða og allar fiskisamlokur valda honum angist.