Ökumaður sem ók bíl sínum á hraðbraut í Sviss missti öll fjögur hjólin undan ökutækinu samtímis á laugardaginn var. Samkvæmt Reuters-fréttastofunni slasaðist enginn er óhappið varð.
Lögreglan í St Gallen segir tildrög óhappsins þau að ökumaðurinn hafði skömmu áður skipt yfir á sumardekk og notað rangar rær með þeim afleiðingum að öll fjögur hjólin þeyttust af bílnum á sama augnablikinu.