Vaknaði með 56 stjörnur á andlitinu

Átján ára gömul belgísk stúlka fór til húðflúrara og bað hann mun að flúra þrjár litlar stjörnur á andlitið á sér. Hún segir, að værð hafi færst yfir hana og hún sofnað á meðan húðflúrarinn vann verkið. Þegar hún vaknaði var hún með 56 stjörnur á andlitinu. 

Stúlkan, sem heitir Kimberley Vlaeminck, hefur kært málið til lögreglu og undirbýr skaðabótamál á hendur Rouslan Toumaniantz, sem skreytti hana. Toumaniantz segir hins vegar að Vlaeminck hafi ekki sofnað og að hún hafi beðið um stjörnurnar 56. Lætin hafi hins vegar byrjað þegar faðir hennar sá stjörnurnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Notaðu dagbókina þína, þú veist, þessa sem einhver keypti handa þér fyrir óralöngu. Maki þinn eykur tekjur sínar og fólk kemur til þín færandi hendi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Notaðu dagbókina þína, þú veist, þessa sem einhver keypti handa þér fyrir óralöngu. Maki þinn eykur tekjur sínar og fólk kemur til þín færandi hendi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar