Eina svínið sem sögur fara af í Afganistan er laust úr sóttkví sem það hefur mátt dúsa í síðan í maí. Svínið var sett í sóttkví vegna ótta við svínaflensu. Svín eru afar fágæt í Afganistan en svínakjöt og svínaafurðir eru ólöglegar þar en samkvæmt múslimatrú eru svín óguðleg.
Svínið góða er gjöf frá dýragarði í Kína og er íbúi í dýragarðinum í höfuðborg Afganistan, Kabul.