Tæplega þrítugur karlmaður lést eftir að hafa fallið ofan í ker með heitu súkkulaði í verksmiðju Cocoa Services í borginni Camden í New Jersey ríki. Maðurinn var að setja súkkulaðið ofan í kerið, sem er 2,5 m djúpt, þegar hann féll af palli ofan í kerið.
Talið er að hann hafi látist samstundis eftir höfuðhögg er hann lenti á spaða vélarinnar.