Breskur skemmtigarður, Wookey Hole Caves, hefur auglýst starf nornar laust, en athygli vekur að nornir á þessum slóðum eru greinilega í hópi hátekjufólks. Fyrir starfann á nornin að fá sem nemur 10 milljónum króna í árslaun fyrir fullt starf. Hún á reyndar aðeins að vinna á helgidögum og um helgar, þannig að útborguð laun verða eitthvað lægri.
Talsmaður skemmtigarðsins, Daniel Medley, segir að þessum háu launum sé ætlað að tryggja að hæfasta mögulega nornin verði ráðin. Umsækjendur munu þurfa að koma með eigin nornabúning.