Það er ekki nóg með að fjárglæframaðurinn Bernard Madoff hafi svindlað á fólki í fjármálum heldur virðist sem hann hafi svindlað á eiginkonunni í tuttugu ár, eða þar til hann gerði hjákonuna nánast gjaldþrota.
Bókin „Madoff's Other Secret -- love, money, Bernie and me," kemur út á næstunni í Bandaríkjunum og lofar höfundur bókarinnar safaríkum sögum af Madoff, sem er fyrrum stjórnarformaður Nasdaq, en situr nú í fangelsi fyrir fjársvik. Var hann dæmdur í 150 ára fangelsi fyrr í sumar.
Höfundur bókarinnar, Sheryl Weinstein, meint fyrrum hjákona Madoff, lýsir því í bókinni hvernig hún hafi misst allt eftir tuttugu ára ástarsamband þegar hún treysti elskhuganum fyrir fjármunum sínum. Á bókin að upplýsa ýmislegt um Madoff sem enginn vissi. Þar er meðal annars að finna myndir og persónuleg gögn.
Weinstein er ein þeirra sem bar vitni þegar Madoff var dæmdur í júní í New York. „Hann er skepna sem hefur traðkað á okkur til þess að uppfylla eigin þarfir... Ég bið ykkur um að loka hann bak við lás og slá inni í búri," sagði hún fyrir rétti en á þeim tíma var ekki vitað að hún hefði átt í ástarsambandi við Madoff.
Bókin kemur út þann 25. ágúst nk.