Bandarísk kona komst að því fyrir skömmu að smáatriði geta skipt miklu máli. Húðflúrsleysi varð til þess að hún áttaði sig á því að hún var ekki í rúminu með eiginmanni sínum heldur eineggja tvíburabróður hans.
Konan hefur nú kært tvíburabróður mannsins síns fyrir nauðgun. Hún hafði verið í heitum potti ásamt manninum og taldi hann vera eiginmann sinn. Leikar æstust svo og héldu þau inn í svefnherbergið þar sem konan áttaði sig á stöðu mála í miðjum samförum þar sem maðurinn hennar var með kúrekatattú á vinstri rasskinn en bróðir hans ekki.
Maðurinn hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi og fyrir að villa á sér heimildir. Hann fer fyrir rétt í Connecticut þann 8. september.