Tyrkinn Sultan Kosen, sem er hæsti maður í heimi, er nú staddur í New York og hann vakti óneitanlega mikla athygli viðstaddra þegar hann kom við á Times Square á Manhattan í gær.
Kosen er hvorki meira né minna en 2,47 metrar á hæð. Fyrra metið átti Kínverjinn Bao Xishun, sem er 2,36 metrar á hæð. Met Kosen var staðfest fyrr á þessu ári.