Filippus drottningarmaður í Bretlandi harmar í viðtali við ritið Shooting Times að borgarbúar sem kaupi sér aukahús í gömlum, hefðbundnum sveitaþorpum séu að eyðileggja þau. Slátrarinn, bakarinn og skósmiðurinn séu að hverfa vegna þess að smásala hafi flust í stórmarkaði.
Sjálf hafa Filippus og eiginkona til umráða fjölda halla og sveitasetra. Hann sagði að menn horfðu fram hjá áhrifum mannfjölgunar á loftslagið. „Það búa núna 60 milljónir manna í þessu landi... en hér bjuggu þrjár milljónir í tíð Elísabetar fyrstu á 16. öld.“