Margir hundaeigendur lenda í vandræðum með hvað gera skuli við hundana þegar eigendurnir leggja land undir fót. Í Taívan hefur verið brugðist við þessu vandamáli með fyrsta flokks hóteli fyrir hunda í borginni Taípei.
Meðal gesta á hótelinu er tíkin Hamingja en hún dvelur á hótelinu á meðan eigandinn ferðast til Kína. Hún buslar daglangt í sundlaug hótelsins og hefur lagt verulega af á hótelinu.
Á hótelinu er snyrtistofa fyrir dýrin þar sem þau geta farið í lagningu og snyrtingu. Ekki amalegt líf að dvelja á þessu hóteli.