Ástralskt par, sem tók þátt í hraðbátakeppni í Temora í Ástralíu, slapp ómeitt þegar bátur þess tók völdin og fór í óvænta flugferð.
Að sögn ástralskra fjölmiðla létu þau Alan Carr og Jo Price þetta óhapp ekki hafa áhrif á sig og tóku þegar til við að gera við bátinn svo þau gætu haldið áfram í keppninni.