Tugur tilvonandi brúðhjóna lagði á sig í vikunni að hlaupa upp 1144 tröppur skýjakljúfs í Tel Aviv í Ísrael. Til mikils var að vinna því sigurlaunin voru ókeypis brúðkaupsveisla með öllu tilheyrandi.
Konurnar voru klæddar í brúðarkjóla og hlaupaskó og karlarnir í jakkaföt - að minnsta kosti til að byrja með.
Sigurvegarar voru Barak Dali og Lilach Malka sem geta nú látið sig fara að hlakka til brúðkaupsins.