Tveir ungir karlmenn sem voru gripnir glóðvolgir af lögreglu þar sem þeir hjóluðu án klæða sluppu með áminningu gegn því að þeir lofuðu að hjóla með hjálm.
Á BBC er haft eftir nýsjálensku lögreglukonunni Cathy Duder að henni hafi brugðið í brún er hún mætti ungu herrunum en það sem meira var - þeim brá víst meira en henni og reyndu hvað þeir gátu að hylja hluta líkama sinna með höndunum. Mennirnir voru í reiðhjólatúr um strandlengjuna í norðausturhluta Nýja-Sjálands.
Þegar þeir voru beðnir um skýringar á fataleysinu sögðust þeir vilja upplifa algjört frelsi. Að sögn lögreglu voru hjólreiðamennirnir allsgáðir og sluppu án þess að vera sektaðir fyrir nekt á almannafæri. Þeir voru hins vegar beðnir um að muna eftir hjálmunum næst.