Lestarstöðin í Sidney í Ástralíu var alsett gervidemöntum, hárlakki og samfestingum í morgun, þegar 400 forfallnir aðdáendur rokkkóngsins Elvis Presley lögðu upp í ferð til smábæjarins Parkes.
Parkes er um 300 kílómetra vestur af Sidney, en þar er nú haldin átjánda árlega Presley-hátíðin. Kóngurinn hefði nefnilega orðið 75 ára í dag. Búist er við því að tíu þúsund manns taki Elvis-hraðlestina til Parkes til að taka þátt í húllumhæinu.
„Þetta er eiginlega bjargvættur bæjarins, svona í þurrkinum,” segir Ken Keith, bæjarstjóri í Parkes við AFP fréttastofuna, íklæddur rauðum samfestingi. „Allir hafa gaman af þessu. Unglingarnir, meira að segja rugby-leikmennirnir. Þetta er frábært.”
Hátíðin byrjaði sem lítil bæjarhátíð, en hefur nú breyst í landsþekktan viðburð og skartar næstum því 150 viðburðum sem tengjast Elvis, þar á meðal risastórri skrúðgöngu um miðbæ Parkes.
Á síðasta ári skapaði hátíðin svæðinu í kringum Parkes um fimmhundruð milljónir króna í tekjur, sem kemur sér vel þegar lítið er við að vera og þurrkurinn ætlar allt að drepa. Í dag eru gestir komnir frá Suður-Afríku, Bandaríkjunum og Skotlandi, svo fáein lönd séu nefnd.
Mörghundruð manns tóku á móti Elvis-aðdáendunum þegar þeir mættu á lestarstöðina í Parkes. „Viva Las Parkes!” hrópaði einn Elvisinn til fólksins, en það svaraði um hæl: „Lengi lifi konungurinn!”