Keppt er í fegurð af ýmsum toga, hvort heldur sem það er líkamlegt atgervi, eða óbeislaðri fegurð. Í Singapúr var hins vegar keppt í húðflúrgerð en þetta er í annað skiptið sem slík keppni fer fram í Singapúr.
Meðal þeirra sem fylgdust með keppninni var Chris Garver sem er heimsþekktur húðflúrmeistari og ræddi Reuters fréttastofan við hann þegar fylgst var með meisturunum sýna listaverk sín.