Rússneskur simpansi hefur verið sendur í meðferð vegna reykinga og bjórdrykkju. Zhora, sem var í eina tíð í stóru hlutverki í sirkussýningum, varð árásargjarn og var í kjölfarið fluttur í dýragarð í borginni Rostov. Þar varð honum nokkurra afkvæma auðið og lærði að teikna. En að auki tók hann að reykja og drekka ótæpilega. „Bjórinn og sígaretturnar voru að fara með hann,“ segir dýrahirðirinn.