Fyrirtækið Black Rock Spirits hefur nú fært heiminum vodka með beikonbragði. Bakon Vodka er eimað úr kartöflum frá Idaho í Bandaríkjunum og er sagt hafa „fullkominn keim af pipruðu beikonbragði“.
Að sögn kunnugra hentar þessi lífsins elexír vel í bloody mary-kokteil og blandast einnig vel saman við skoskt viskí. Flaskan kostar 30 dali, eða sem nemur tæpum 4.000 krónum. Hægt er að fá upplýsingar um vöruna á bakonvodka.com.