Zhang Xiaoyan er þriggja ára línudansari sem látin er leika listir sínar fyrir ofan hungraða Síberíu tígra. Einungis þunn öryggislína kemur í veg fyrir að stelpan, sem datt í þrígang er myndatökumaður Reuters fylgdist með, lendi í tígrisbúrinu.
„Ég er hrædd við tígrisdýrin. Þau geta bitið,“ sagði Zhang, sem tilheyrir Jiangxi barnalistahópi sem faðir hennar fer fyrir. Línudansinn hefur mætt þó nokkurri gagnrýni og eru sumir á því að hann flokkist undir misnotkun.