Háttsettur íranskur klerkur telur, að kenna megi ósiðavöndum konum um það hve jarðskjálftum hefur fjölgað að undanförnu.
Hojatoleslam Kazem Sedighi sagði í prédikun í Teheran sl. föstudag, að konur yrðu að gæta að ströngum siðareglum um klæðaburð.
„Margar konur, sem klæða sig ekki siðsamlega, afvegaleiða unga menn og hvetja til ótryggðar í samfélaginu sem eykur jarðskjálftavirkni," hefur vefur breska ríkisútvarpsins, BBC, eftir klerkinum, sem var að prédika um þörfina á almennri yfirbót Írana.
„Hvað getum við gert til að komast hjá því að grafast undir rústunum?" spurði klerkur. „Það er engin önnur leið en, að leita skjóls í trúnni og lifa lífinu í samræmi við íslamskar siðareglur."