Fundargestum, sem mættu á hádegisfund oddvita stjórnamálaflokkanna í Háskólanum í Reykjavík, brá heldur betur í brún þegar Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, lýsti því yfir að hann ætlaði að draga framboðið til baka, því kosningabaráttan væri svo leiðinleg.
Mörgum létti, og margir hlóu, þegar hann tilkynnti stuttu síðar að um „djók“ væri að ræða. Flokkurinn muni bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum.