Krans gerði skyndiárás

Kransinn lenti beint á forsetanum.
Kransinn lenti beint á forsetanum.

Myndskeið sem sýnir stærðarinnar krans falla á höfuðið á Viktor Janúkóvítsj, forseta Úkraínu, hefur farið sem eldur um sinu á netinu. Málið þykir vandræðalegt og það varð enn vandræðalegra þegar ásakanir fóru að berast þess efnis að forsetinn hafi reynt að koma í veg fyrir birtinguna.

Atvikið átti sér stað í gær þegar Janúkóvítsj var viðstaddur minningarathöfn um þá sem hafa fallið í stríði. Dímítrí Medvedev, forseti Rússlands, var jafnframt viðstaddur athöfnina, en Medvedev var í opinberri heimsókn í Úkraínu.

Slagveður gerði umræddan dag og um leið og Janúkóvítsj beygði sig fyrir framan kransinn þá fauk hann um koll. Hann hæfði forsetann beint í höfuðið.

Forsetinn stóð einsamall þegar þetta gerðist, en nokkrir aðstoðarmanna hans ruku til þegar þeir sáu hvað hafði gerst. Kransinn var settur aftur á sinn stað, og á meðan lagaði forsetinn á sér hárið. Hann virtist nokkuð ringlaður eftir höggið.

Tugir þúsunda hafa nú þegar horft á myndskeiðið á YouTube.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Notaðu dagbókina þína, þú veist, þessa sem einhver keypti handa þér fyrir óralöngu. Maki þinn eykur tekjur sínar og fólk kemur til þín færandi hendi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Notaðu dagbókina þína, þú veist, þessa sem einhver keypti handa þér fyrir óralöngu. Maki þinn eykur tekjur sínar og fólk kemur til þín færandi hendi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar