Hundaunnendur syrgja nú hárlausan kínverskan hund með útstæð augu, sem var formlega útnefndur ljótasti hundur heims fyrir tveimur árum.
Miss Ellie er nú öll, 17 ára að aldri. Hún kvaddi þennan heim á þriðjudag á heimili eigenda sinna í Tennessee, að sögn blaðsins Mountain Press.
Hundurinn vakti heimsathygli í byrjun síðasta árs þegar haldin var samkeppni í Kalíforníu á vegum Animal Planet um hver ætti ljótasta hundinn. Dawn Goehring tefldi Miss Ellie fram og sigraði auðveldlega.
Í kjölfarið safnaði hundurinn og eigandinn 100 þúsund dölum fyrir ýmis dýraverndarfélög. Til stóð að Miss Ellie færi aftur til Kalíforníu síðar í júní til að verja titilinn.