Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur hnekkt þeirri stefnu FCC, eftirlitsstofnunar stjórnvalda í Washington frá árinu 2004 að bannað skuli að nota gróf blóts- og klámyrði í útsendingum útvarps- og sjónvarpsfyrirtækja.
Fram til þessa hefur verið hægt að sekta stöðvar fyrir brot á reglunni, að sögn BBC. En dómstóllinn úrskurðaði að það hefði í reynd „heftandi“ áhrif á tjáningarfrelsi stöðvanna að banna allt sem talið væri „augljóslega ögrandi“ tilvísanir í kynmök, kynfæri og úrgangsefni líkamans þar sem ekki væri skilgreint vandlega hvað væri ögrandi. Með reglunni væri ýtt undir ótta hjá starfsfólki stöðvanna.