Fimm ára írskur drengur sem ranglega var sakaður um að hafa stolið poka af kartöfluflögum hefur fengið 7.500 evrur í bætur eða rúmlega eina milljón króna.
Drengurinn fór með móður sinni í verslunarkeðjuna Lidl í júní á síðasta ári. Starfsmaður verslunarinnar taldi að drengurinn hefði reynt að stela kartöfluflögum úr versluninni og tók þéttingsfast í handlegg hans. Lögmaður drengsins sagði fyrir dómstólnum að þessi ásökun hefði valdið honum tjóni. Mannorð hans hafi skaðast. Dómarinn féllst á rök lögmannsins.