Þýskir vísindamenn hafa fundið brot úr höfuðkúpu hunds og tennur hans í helli í Sviss en talið er að hundurinn hafi verið uppi fyrir um 14.000 árum. Hann væri því elsti besti vinur mannsins, í bókstaflegum skilningi.
Þá fannst steingervingur hundakúks með flóru steingerðu beinanna. Uppgötvun hellisins sem hafði fundinn að geyma átti sér stað árið 1873 í Kesserloch, Sviss en það var þó ekki fyrr en í fyrra sem vísindamenn í Tuebingen-háskóla litu nánar á steingervingana þar.
Þá hefur fengist staðfest að þetta eru elstu leifar af hundi sem fundist hafa í heiminum.