Óhefðbundnar aðferðir leikmanna Stjörnunnar í efstu deild knattspyrnumanna á Íslandi halda áfram að vekja athygli en margar milljónir manna skoðuðu nýlega myndskeið á YouTube þar sem Stjörnumenn fögnuðu marki með því að þykjast setja í stórlax.
Á nýju myndskeiði á YouTube sjást leikmenn Stjörnunnar fagna þremur mörkum gegn liði Selfoss í gær á óvenjulegan hátt, þar á meðal á „fæðingardeildinni".