Stjórnvöld í Norður-Kóreu er komin á YouTube vefinn ef marka má lofræðuna sem birtist um land og þjóð í ellefu myndskeiðum sem vistuð eru undir heitinu uriminzokkiri. Er það heiti á vefslóð í eigu ríkisins N-Kóreu.
Meðal annars er kommúnistaríkið dásamað og leiðtogi þess Kim Jong-Il. Jafnframt er því hafnað í myndskeiðunum að N-Kórea hafi sökkt herskipi Suður-Kóreu líkt og stjórnvöld þar hafa haldið fram.
Hér er hægt að skoða myndböndin á YouTube