Lengsta nafn í Evrópu

22 ára gömul kona í Bretlandi, sem áður hét Ceejay Epton, breytti nafni sínu þannig að það inniheldur alla stafi í breska stafrófinu. Segist hún hafa gert það til að nýfætt barn hennar eigi auðveldara með að læra að lesa þegar þar að kemur.

Íslenska mannanafnanefndin hefði væntanlega maldað eitthvað í móinn hefði hún fengið svipaða beiðni en Ceejay breytti nafni sínu í: Ceejay A Apple B Boat C Cat D Dog E Elephant F Flower G Goat H House I Igloo J Jellyfish K Kite L Lion M Monkey N Nurse O Octopus P Penguin Q Queen R Robot S Sun T Tree U Umbrella V Violin W Whale X X-Ray Y Yo-Yo Z Zebra Terryn Feuji-Sharemi.

Fram kemur á vef breska blaðsins Metro, að vinir konunnar kalli hana Ungfrú Stafróf. Kian sonur hennar kallar hana hins vegar bara mömmu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar