Ætla má að dýrasta beitarland í heimi sé í austurríska þorpinu Trebesing. Það er að minnsta kosti mat þorpsbúa og hafa þeir haft samband við Guinness heimsmetabókina til að fá það staðfest.
Stjórnvöld vörðu upphaflega um tveimur milljörðum króna til að byggja hraðbraut í gegnum þorpið. Íbúar mótmæltu hins vegar harkalega og í kjölfarið var ákveðið að verja þremur milljörðum í viðbót í byggingu jarðganga undir þorpið. Upphaflega brautin hefur verið þökulögð og er nú beitarland.