Reyndu að bora sig niður í bankahvelfinguna

Auglýsingaspjald fyrir Woody Allen myndina Small Time Crooks.
Auglýsingaspjald fyrir Woody Allen myndina Small Time Crooks.

Lögreglan í Albaníu handtók í dag tvo karlmenn sem reyndu að brjótast inn í banka í Tirana, höfuðborg landsins. Mennirnir leigðu sér íbúð fyrir ofan bankann og gerðu tilraun til að bora sig niður inn í bankahvelfinguna.

Þykir málið minna nokkuð á söguþráð kvikmyndarinnar Small Time Crooks eftir Woody Allen. Hávaðinn frá bornum leiddi til þess að lögreglunni var gert viðvart. 

Tonin Vocaj, lögreglustjórinn í Tirana, segir að lögreglan hafi beðið átekta og látið loks til skarar skríða þegar bófarnir voru við það að ljúka við að bora göngin.  

Vopnuðum ránum hefur fjölgað mjög í höfuðborginni, en ræningjarnir einblína þá á lítil bankaútibú þar sem öryggisgæsla er lítil.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir