Bæjarfulltrúar og gestir, sem fylgdust með bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í vikunni fóru að hlæja þegar nýjasta fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum var til umfjöllunar.
Frá þessu er sagt á vef Víkurfrétta. Fram kemur, að þótt umræddur stjórnarfundur hafi staðið í hátt á annan tíma hafi þeir sem lásu fundargerðina verið litlu nær um hvað þar fór fram. Hún var svohljóðandi:
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:34.
Víkurfréttir segja að Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, hafi á bæjarstjórnarfundinum óskað eftir því við Gunnar Þórarinsson, forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og nýkjörinn formann Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, að hann sæi til þess að fundargerð SSS yrði marktæk framvegis.
„Ég hef aldrei á ævinni séð svona vitleysu. Ég óska þess að þetta verði
fært til bókar og formanni falið að sjá til þess að þetta verði gert
betur,“ hefur vf.is eftir Friðjóni.
Gunnar sagðist skyldu koma þessu á framfæri.