Rannsóknir við Ericiyes-háskóla í Tyrklandi gefa til kynna að holdugir karlar þurfi ekki endilega að örvænta, ef marka má danska blaðið Jyllandsposten. Þeir eru þrautseigari í ástarleikjum en þeir grannvöxnu.
Meðalþrautseigja þeirra grönnu var aðeins rúmlega hálf önnur mínúta. En bumbukarlarnir héldu út í rúmar sjö mínútur. Munurinn stafaði ekki af því þeir feitu væri slappir og lengi að koma sér í gang, sögðu vísindamennirnir. En þéttvaxnir hafa í sér meira af kvenhormóninu estradiol sem seinkar fullnægingu. kjon@mbl.is