Hópur manna í Detroit í Bandaríkjunum unnu 129 milljónir dala, 14,5 milljarða króna, á miða sem keyptur var í klámbúð í borginni.
Mennirnir sendu einn úr hópnum, Mike Greer, til að sækja vinninginn en aðrir vildu ekki koma fram undir nafni. Greer, sem er 49 ára starfsmaður í ljósmyndabúð, sagðist ekki hafa keypt lottómiðann sjálfur - „en það er öllum saman hvar hann var keyptur."
Klámbúðin er í Highland Park hverfinu í Chicago.