Nú stendur yfir heimsbikarmót í quidditch, íþróttinni, sem Harry Potter og skólafélagar hans keppa í á fljúgandi kústum. Keppendur í mannheimum eiga hins vegar ekki kústa sem fljúga og verða því að láta sér nægja að hlaupa með þá.
Markmiðið í heimsbikarmótinu, sem fer fram í New York, er þó það sama og í galdraheimi Harry Potters: að koma bolta gegnum lykkjur á staurum. Og eins og í galdraskólanum meiða keppendurnir sig stundum.