Lögreglan í Sandnes í Noregi fékk tilkynningu um innbrot í málningarverkstæði í bænum í dag. Þegar að var komið stóð fellihurð opin. Þjófurinn hafði skilið eftir sig slóð í nýföllum snjó og var auðvelt að rekja sporin.
Lögreglan sagði að maðurinn hafi komið á staðinn í bíl. Sporin í kringum bílin voru eins og þau í kringum innbrotsstaðinn. Innbrotsmaðurinn, sem er 41 árs, játaði innbrotið og var stungið inn. Hann verður yfirheyrður í dag.