Lögregla á Rhode Island í Bandaríkjunum segir, að jólasveinn hafi framið vopnað rán á bar í siglingaklúbbi í East Providence.
Lögreglan segir, að stórvaxinn maður, með hvítt gerviskegg og íklæddur rauðri skykkju, hafi komið inn á barinn í gærkvöldi og veifað skammbyssu. Barþjónninn, sem er kona, flúði inn í annað fyrirtæki og hringdi á lögregluna.
Þegar lögreglumenn komu á staðinn var jólasveinninn horfinn og einnig talsvert af peningum úr peningakassanum.