Kannski var það fullmikil bjartsýni að smala saman 2.500 háskólastúdentum frá Oxford og Cambridge í skíðaferð og ætlast til að allt færi vel fram. Ferðin sem farin var í Alpana í ár, fór reyndar svo mikið úr böndunum að mati eins styrktaraðilans að hann hefur heitið því að koma aldrei nálægt kostun hennar aftur.
Ferðalag stúdentanna endaði á keppni um ævintýraferð í boði Scott Dunn ferðaskrifstofunnar. Til að skera sig úr tóku margir keppendur upp á ýmsum brögðum, s.s. að skíða naktir smurðir í súkkulaði eða pastasósu, eða brjóta egg á milli rasskinnanna og borða það svo.
Einn stúdentanna játar í samtali við skólablaðið sitt að hafa selt æru sína fyrir frítt ferðalag.
Scott Dunn hélt fyrirfram að snjallt væri að leggja nafn sitt við nemendur framúrskarandi háskóla. Í ljós hefur komið að ungmenni haga sér öll eins, í hvaða skóla sem þau ganga.