72 ára gamall breskur maður, sem eignaðist tvíbura fyrir tveimur árum, hefur eignast enn eitt barnið. Hann er elsti maður sem eignast hefur tvíbura í Bretlandi. Hann segist hafa áhuga á að eignast fleiri börn.
Richard Roden á 13 börn, en núverandi eiginkona hans er 26 ára gömul. Þau eignuðust tvíbura fyrir tveimur árum þegar Roden var sjötugur. Hann á 36 barnabörn og 9 barnabarnabörn. Elsti sonur hans er 52 ára gamall.
Roden segist vera ánægður með nýja barnið. Hann segist vera við góða heilsu, en hann hefur átt við krabbamein í þvagblöðru að stríða.