Elaine Davidson, sem hampar titlinum Gataðasta kona heims, er gengin út. Hinn heppni er borgarstarfsmaðurinn Douglas Watson en parið á að baki langa trúlofun. Elaine er með 7000 göt á líkamanum, þar af 192 í andlitinu og 1500 innvortis.
Þrátt fyrir það segist hún ekki eiga í vandræðum með dagleg störf eða athafnir. Elaine, sem er skosk, var máluð í framan og hárið var ríkulega vafið blómaskreytingum og ull. Brúðguminn var í sjöunda himni og sagði blaðamönnum að Elaine væri fegursta kona heims. Þegar hann liti á hana sæi hann ekki allt skrautið heldur persónuna sem hún er.